Hlutir sem vekja kátínu mína

Já, ég sagði í síðasta bloggi að ég ætlaði bara að skrifa um hluti sem vekja kátínu mína. Ég mun standa við það.

Fyrst vil ég minnast á pistla í blöðum sem virðast ekki gera ráð fyrir því að á Íslandi finnist landsbyggð. Í janúar las ég pistil eftir Hjálmar Sveinsson varaborgarfulltrúa. Hann var að tala um svifryksmengun. Vissulega kemur mikil mengun af því að nota nagladekk, og sjálfsagt að vinsamlegast óska eftir því að Reykvíkingar kjósi fremur að nota heilsársdekk til að minnka slíkt, enda sjaldan sem kemur hörkuveður, ófærð og hálka hér fyrir sunnan. Hinsvegar varð ég hugsi þegar hann endaði pistilinn á því að segja að helst ætti að banna nagladekk í Reykjavík og sekta ætti fólk sem keyrði á slíkum dekkjum. Hann sagðist þar vera að vísa í Andra Snæ Magnason og að styddi hann fullkomlega. En nú hugsa ég: Hvað með fólk sem kemur utan af landsbyggðinni til Reykjavíkur, frá stöðum þar sem er nokkuð mikilvægt að nota vel negld dekk, ekki síst ef aka þarf yfir heiðar? Eða þá íbúa Reykjavíkur sem oft leggja leið sína út fyrir bæjarmörkin, etv. til að komast til ættingja fyrir norðan eða austan eða vestan? Jamm, kannski slíkt fólk verði bara að bíta í það súra epli, annaðhvort að borga sínar sektir, eða þjálfa sig upp í að skipta reglulega um dekk og alltaf eiga mismunandi pör á lager. Nú, ef þú ert að koma til borgarinnar, stoppaðu þá í Borgarnesi og skelltu heilsársdekkjunum undir.

Svo er næsta mál sem vekur kátínu mína (þó ég vilji taka það fram að ég sé ekki að leggja það á sama borð og athugasemdina hér að ofan): Westboro Baptist Church. Þið munið eflaust eftir þeim, en þeir skipulögðu bókabrennu þann 11. September síðastliðinn. Bókin sem átti að brenna: Kóranin. Ef þú hefur ekki heyrt um þau; Googlaðu það. Þvílíkur endalaus hálfvitaskapur er eitt dæmi um það sem fáfróðir telja sér fært að gera með Biblíuna að vopni. Bókabrenna er bara eitt af röðum bjánaláta sem þetta fólk setur sér fyrir.

Þau hata samkynhneigða, gyðinga, þau hata kaþólsku kirkjuna, rétttrúnaðarkirkjuna, múslima, hindúa, ítali (uu.. já) og þau segja að Barack Obama sé Antikristur, og að hann formi “hina óheilögu þrenningu”, ásamt Satan og Benedikt páfa. Þau segja að Guð hati Ameríku (eitt af fjölmörgum litskrúðugum mottóum þeirra sem öll snúast um hatur Guðs) vegna þess að Ameríka líði samkynhneigð í landinu. Þau segja að stríðið í Írak sé refsing Guðs fyrir einmitt þetta, og þau hafa haldið mótmæli við jarðarfarir fallinna hermanna. Þau hafa líka haldið mótmæli við jarðarfarir samkynhneigðra, og þar af í tilfellum þar sem viðkomandi hefur verið bókstaflega laminn til dauða fyrir samkynhneigð sína. Undarlegt nokk segjast þau ekki vera rasistar, en þau segja: “We don’t believe in physical violence of any kind, and the Scripture doesn’t support racism. … The only true Nazis in this world are fags.” Svo þeim tekst að troða samkynhneigðum inn þarna líka, en mér finnst það mjög sérstakt að þau vilji meina að samkynhneigðir séu Nasistar. En ég vitna í heimasíðu þeirra, ykkur til útskýringar:

Meaning of “God Hates Fags”

“GOD HATES FAGS” — though elliptical — is a profound theological statement, which the world needs to hear more than it needs oxygen, water and bread. The three words, fully expounded, show:

1. the absolute sovereignty of “GOD” in all matters whatsoever (e.g., Jeremiah 32:17, Isaiah 45:7, Amos 3:6, Proverbs 16:4, Matthew 19:26, Romans 9:11-24, Romans 11:33-36, etc.),

2. the doctrine of reprobation or God’s “HATE” involving eternal retribution or the everlasting punishment of most of mankind in Hell forever (e.g., Leviticus 20:13,23, Psalm 5:5, Psalm 11:5, Malachi 1:1-3, Romans 9:11-13, Matthew 7:13,23, John 12:39-40, 1 Peter 2:8, Jude 4, Revelation 13:8, 20:15, 21:27, etc.), and

3. the certainty that all impenitent sodomites (under the elegant metaphor of “FAGS” as the contraction of faggots, fueling the fires of God’s wrath) will inevitably go to Hell (e.g., Romans 1:18-32, 1 Corinthians 6:9-11, 1 Timothy 1:8-11, Jude 7, etc.).

The only lawful sexual connection is the marriage bed. All other sex activity is whoremongery and adultery, which will damn the soul forever in Hell. Heb. 13:4. Decadent, depraved, degenerate and debauched America, having bought the lie that It’s OK to be gay, has thereby changed the truth of God into a lie, and now worships and serves the creature more than the Creator, who is blessed forever. Amen! Rom. 1:25. But the Word of God abides. Better to be a eunuch if the will of God be so, and make sure of Heaven. Mat. 19:12. Better to be blind or lame, than to be cast into Hell, into the fire that never shall be quenched. Mk. 9:43-48. Abstain, you fools.

-http://www.godhatesfags.com/

Þau eru ósköp dugleg við að mótmæla. Wikipedia sagði mér að þau eyddu í kring um $250,000 árlega í mótmæli. Það kalla ég tryggð við málstaðinn. Greinilegt að þetta er þeim mikilvægt. En hvað getur maður gert þegar maður les um svona fólk? Það er varla að ég viti hvort ég eigi að gráta af reiði eða hlæja af kátínu. Ég kaus þó það síðara, því það er auðveldara að gera lítið úr grimmu fólki ef maður hlær að því, og þar fyrir utan gaf það mér réttinn til að minnast á þau hér, því varla færi ég að skrifa um eitthvað sem lætur mig gráta af reiði. Trúarlegir öfgahópar, jafnvel öfgahópar af hvaða tagi, eru mér þungbært hugsunarefni, en þetta fer út fyrir öll mörk. Svo, endilega, hlæjum dátt og viðurkennum að þetta eru svolitlir bjánar. Þau eru allavega ekki ofbeldisfull, bara innilega vitlaus. (Ég er búin að minnast svolítið oft á það hvað mér finnst þau vitgrönn. Er ég núna farin að hljóma sem sú fordómafulla?)
Síðasta mál á dagskrá er Sascha Prehn, dýratemjari. Hann fer reglulega í göngutúr með litlu tígrisynjuna sína, sem heitir Sina, í bænum Berkentin, Þýskalandi. Hann þarf að ganga með hana um fáfarnar leiðir, því bæjarbúar hafa kvartað yfir því að tígrisynjan vekji hjá þeim hræðslu þegar hún röltir hjá, sem er að sjálfsögðu fullkomlega óskiljanlegt. Ég hef ekkert fleira um það að segja. Þetta vakti einfaldlega hjá mér kátínu.
-Fjóla, full kátínu eftir þetta blogg

Að sérstakri beiðni Lögreglu

Ég vaknaði í morgun með hár sem Tina Turner hefði getað verið stolt af og það var svo kalt í íbúðinni hérna á Hjallaveginum að ég fór í hlýrri náttföt. Staulaðist fram til að fá mér eitthvað að borða. Komst svo að því að mikil krísa var á ferð. Einungis EIN sígaretta eftir í pakkanum!! (Dramatísk tónlist spiluð í bakgrunni sem þetta blogg er ekki nógu öflugt til að miðla) Ég sperrti eyrun fyrir ýlfrandi hljóðum sem bárust með vindinum um óþétta glugga. Hrollur. Ég myndi þurfa að yfirgefa náttfötin fyrir venjuleg föt.

Síðar, þegar ég var komin aftur heim, komin í náttfötin á ný og búin að hella upp á yljandi kaffi til að sötra yfir Sherlock Holmes, fékk ég skilaboð á farsímann. Hvað er atarna? “Þú ert ekki í vinnu svo þú hefur enga afsökun fyrir því að blogga ekki. Kveðja: Lögreglan á Sauðárkróki.” Nú, lögreglan á Sauðárkróki hefur sýnt það nýlega að þeir stóla mikið á persónulegar netsíður í sínum störfum, svo ég gat ekki annað gert en að sinna borgaralegri skyldu minni og setjast niður við tölvuna. Þar að auki hef ég verið beitt miklum þrýstingi frá yngri systur sem hefur ekkert annað að gera í vinnunni á fimmtudögum en að flakka um á netsíðum. Þegar tveir slíkir valdhafar, annars vegar lögreglan, og hins vegar hættulega skapstygg lítil systir, beita áhrifum sínum, hvað getur þá Skagfirsk yngismær annað gert en að hlíta því?

Satt best að segja var ég nánast búin að gleyma þessu bloggi. Nánast. Fyrst í stað gat ég ekki skrifað nýtt blogg því ég var of upptekin við að reyna að upphugsa eitthvað ódauðlegt til að skrifa. Núna hef ég hinsvegar lesið yfir mitt fyrsta, skuggalega langa, blogg og það er nákvæmlega enginn punktur í því. Já, ekki svo ódauðlegt semsagt. Ég mun seint ná hæðum Homers eða Tolstojs í þessu bloggbrölti mínu.

En blogg eru til þess að láta heiminn (eða allavega þetta sandkornsbrotabrot af honum sem les) vita hvað maður er að hugsa og hvað maður er að gera, þó í stöku tilfellum geta þau bara haft skemmtanagildi. Það eru hinsvegar fáir sem geta skrifað svo skemmtileg blogg að aðrir en mamma lesi þau reglulega. Ætli þetta snúist ekki mest um að fá útrás. Persónulega finnst mér blogg þar sem fólk talar opinskátt um erfiðleika sína eða það hvað lífið sé í raun fallegt og dásamlegt, eða jafnvel hvoru tveggja, vera leiðinleg. Svo ég ætla ekki að skrifa neitt svoleiðis. Ég ætla bara að skrifa um merkingarlausa hluti sem vekja hjá mér kátínu. Ég fylli upp í hópinn sem hefur ekkert skemmtanagildi utan fjölskyldunnar og það er allt í lagi. Mér finnst mjög gaman að sjá mömmu kommenta á það hvað ég sé sniðug stúlka. (Að ég tali ekki um þegar lögreglan lítur inn).

Ég er samt að hugsa um að láta þar við sitja þennan daginn. Ekki var þetta langt blogg, en mitt síðasta bætir það upp, og vel það.

Ég skila mínum innilegustu kveðjum til lögreglunnar, með von um ánægjulegan lestur.

Að lokum, skemmtilegasti bóksali Bretlands:

Íslenskar konur

Ég byrja mitt glænýja blogg á því að skrifa um íslenskar konur. Það er aðallega vegna þess að á einu handahófskenndu flakki á netinu rak ég augun í nokkuð sem vakti áhuga minn. Það kann að vera rétt að þetta efni hafi komið upp áður, en það ekkert síður áhugavert þrátt fyrir það. Það var sérstaklega eitt blogg sem vakti kátínu mína. Ég kem að því síðar.

Það er athyglisvert að sjá hvað kemur upp á leitarniðurstöðum þegar maður slær inn: “Icelandic women” á google.co.uk. Það mjög tvískipt hvernig á okkur er litið. Annars vegar erum við allar harðkjarna rauðsokkur og femínistar, og á hinn bóginn erum við upp til hópa ljóshærðar gyðjur sem eru helst til lausar í nærbuxunum.
Mér fannst það alveg hreint merkilegt að sjá heilu bloggin sem helguð voru íslensku konunni, og útskýrðu fyrir karlmönnum úti í hinum stóra heimi frá þessum óuppgötvaða demanti sem kynhvöt íslenskra kvenna er. Á fyrsta blogginu sem ég rakst á, var þetta hér:

“Skeptically, I listened to him as he told me of untold riches in the form of Nordic, blonde hair, blue-eyed, curvaceous girls in a region that is ill-named. I have written about hotspots to go around the world, but this place apparently tops them all. According to him, the girls approach you and if you don’t happen to be blonde and blue-eyed, you’ll stick out – which is a good thing. You see, Iceland is one of the most geneticially pure countries in the world.”

Ég vil taka það fram að yfirskrift bloggsins er: The World’s Easiest Women: Iceland
Piparsveinninn í Sílíkondalnum, eins og hann kallar sig, hefur reyndar ekki heimsótt þetta kynlífsfrjálsa land okkar, en hann hefur það eftir góðum heimildum frá vini sínum að þetta sé hin sanna mynd íslenskra kvenna. Við erum draumaeyjan þar sem aríarnir búa og stunda kynlíf.
- ( http://www.siliconvalleybachelor.com/2008/05/worlds-easiest-women-iceland.html )

Næsta blogg sem ég las sagði frá fegurð þessara íslensku gyðja, en allar myndirnar voru af sömu konunni, neflinlega þessari hér:

Já, við lítum allar út eins og playboygellan Ásdís Rán. Það hefur nú ekki farið fram hjá neinum.
- ( http://www.9uy.info/2009/08/beautiful-icelandic-women.html )

Nú, næsta blogg á dagskránni hjá mér var aðeins innihaldsríkara. Stíllinn er góður og hnyttinn og hann talar gáfulega um hluti eins og bláa lónið, hreina Reykjavík og matarupplifun. En viti menn, undir lokin fer að grilla í meira spennandi hluti.

“Now, the real reason I was in Iceland. Babes. Tall, blond, curvy babes. And if you believe what you read, which you should if you are reading this, the rumors are true. There is very little subtlety in the motives of the average Icelandic woman when she is attracted to you. Especially at 1:00 AM on a Friday night on the street in front of my hotel.”

“A few cocktails later, I sauntered out the front door of my hotel, with yet another drink in my hand and was almost immediately knocked down by two women. After a couple slurred words, they hooked my arms and lead me to the their favorite club. At this point I was mentally reviewing the rumors about the Icelandic women and I was unsure of what to expect, but my curiosity quickly wilted away after we sat down at our table. The blonder of the two immediately grabbed my hand and with a beautiful grin on her face placed it firmly in her crotch and then crossed her legs for good measure. The night just got more depraved from there.”

Já, þarna er það í hnotskurn. Þeir eru ófáir ungu bretarnir sem hafa lagt land undir fót í leit að ljóshærðu íslensku konunni, og þá sérstaklega eftir að Flugleiðir hófu auglýsingaherferð sem buðu þeim upp á heita helgi á Íslandi. Gott mál fyrir ferðaiðnaðinn.
- ( http://www.bootsnall.com/articles/02-06/never-an-idle-moment-iceland.html )

Það eru ekki aðeins flugleiðir sem hafa haft áhrif á þessa jákvæðu ímynd okkar. Ein helsta auglýsingin fyrir gæði íslenskra kvenna er hinn frægi Quentin Tarantino. Ég fann skemmtilega grein sem heitir einfaldlega: Quentin Tarantino Loves Icelandic Women. Þessi setning kemur í lok greinarinnar: “In America, the idea is to get the girls drunk enough to go home with you, in Iceland it’s to get the girls home with you before they get so drunk that they’re passing out in your bathroom or vomiting all over you.” Mér fannst það frekar skemmtileg tenging við titilinn.
-( http://www.femalefirst.co.uk/movies/movie-news/Quentin+Tarantino-12391.html )

En ein allraskemmtilegasta greinin sem ég las var ekki einu sinni af þessu tagi. Hún var eiginlega af allt öðrum meiði. Það muna sjálfsagt flestir eftir því þegar hún Þórunn spjallaði við Opruh um íslenskar konur. Jú, hún ýtti undir þessa staðalímynd íslenskra kvenna í augum alheimskarlanna, og ég ætla ekki að fara að segja að ég hafi notið viðtalsins neitt sérstaklega, en það var nú ekki margt sem hún sagði sem var alveg algerlega vitlaust. Málið er semsagt það, að ég fann út frá því eitt besta bloggið sem ég rakst á í þessum einkakönnunum mínum.
Til að byrja með var titillinn á blogginu þessi: Not Your Average Jewess, og undirtitillinn var A Jewish girl from Iceland living in Southern California, trying to fight anti-semitism and injustice where she sees it! Þarf að segja meira? Athygli mín var vakin, og ég las langt blogg þar sem hún greyið Þórunn var rökkuð niður fyrir að eyðileggja orðspor þessarar annars ágætu gyðingastúlku. Þórunn talar um það að stefnumótamenning sé raunverulega ekki til á Íslandi og að það séu ekki til staðar neinar reglur um það hvenær megi kyssast og hvenær megi stökkva upp í rúmið. Þetta er nú bara nokkuð rétt hjá henni. Við erum ekki eins og fólkið í Amerísku rómantíkurmyndunum. Þessu er samt hin íslenska ofurhetja gyðinga ekki sammála. Henni finnst það vita fráleitt að nokkur íslensk manneskja láti svona. Ég hef orðrétt eftir henni: “That’s an insane thing to say. People don’t kiss on the first date, and they wouldn’t have sex for several dates, unless it’s a one night stand..” Já heyriði það. Það er brjálæði, brjálæði segi ég! Þórunn er greinilega alveg í ruglinu þarna. Það var hins vegar eitt dularfullt þegar ég las kommentin. Maður að nafni Þorbjörn er ekki alveg sammála henni Maríu (það er nafn íslensku gyðingaofurhetjunnar) og hann setti inn athugasemdir á ensku og á einum stað svarar hún honum á sænsku. Ég fór svona aðeins að velta því fyrir mér hversu íslensk gyðingastúlkan í rauninni sé, og hvort hún hafi ekki ruglast á tungumálum þegar hún skrifaði setninguna inn í babelfish. Hún segir samt sitt á hvað að hún eigi heima á Íslandi og Bandaríkjunum. Ef maður les fleira á síðunni hennar er hægt að finna mikið af fræðandi múslímahatri og uppörvandi herópum fyrir gyðinga heimsins. Ísrael er fyrirheitna landið og hana nú! Við mælum með þessarri síðu. Til gamans má geta að slóðin á bloggið hennar inniheldur orðið Hatshepsut (sjá hér fyrir neðan), en það var kvenkyns egypskur faraó. (Kannski Maríu líki bara við egypta ef þeir eru gamlir og dánir) Hatshepsut var mjög svöl gella og ein af sárafáum faraóum sem tókst að halda friði og fara ekki í nein stríð á meðan hún ríkti. Margt hægt að segja um Hatshepsut, en ekki fannst mér þetta alveg passleg staðsetning fyrir hana, greyið.
- ( http://hatshepsut.mu.nu/archives/081748.php )

Svona í lokin langaði mig að gera samanburðarkönnun. Ég fer á google og slæ inn “English Women”. Já. Nú, fyrst segir Katie Perry að enskar konur séu “dirty” í raun, en reyni alltaf að vera hæverskar
http://www.imnotobsessed.com/2010/09/06/katy-perry-says-english-women-are-the-dirtiest-girls/ )…og það er það eina á þeim nótunum.
Næsta vefsíða er um Crazy English Cat Ladies
( http://www.guardian.co.uk/tv-and-radio/2010/oct/28/wonderland-mad-cats-and-englishwomen-review ).
Svo kemur English Women’s Golf Association
(http://www.englishwomensgolf.org/Default.asp)
og sú síðasta sem ég nennti að lesa var
ENGLISH WOMEN’S LIVES IN THE 19th & 20th CENTURIES BASED ON A STUDY OF HASTINGS & St LEONARDS
(http://www.hastingspress.co.uk/history/ )
….Saucy!

Við skulum ekkert vera að vesenast í því að kvarta. Ef einhverjir bjánalegir kallar utan úr heimi flykkjast hingað til Íslands til þess eins að fá að keleríast við einhverja víkingadrottningu, þeir um það. Við getum séð um okkur sjálfar og við kunnum alveg að slá frá okkur þegar um bjána er að ræða. Þeir geta þá dælt sínum pening inn í ferðaiðnaðinn í staðinn og túra um gullna hringinn á meðan glóðaraugað er að jafna sig.

Fjóla -Dökkhærð íslensk kona

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.